TVG Xpress er hraðflutningaþjónusta til og frá Íslandi sem sérhæfir sig í þjónustu við netverslanir.
Öll afgreiðsla og meðferð vörunnar er í forgangi og afhendingartími frá því að varan kemur til landsins er mun skemmri en í almennum flugsendingum.
TVG Xpress byggist á „Door-To-Door“ afhendingu: Varan er sótt, send, tollafgreidd og loks afhent viðtakanda.
Við sjáum um móttöku og dreifingu á vörum fyrir fjölmargrar innlendar og erlendar netverslanir og er tískuvöruverslunin ASOS þeirra á meðal.
Vöruhúsið okkar er í Vatnagörðum 22, 104 Reykjavík.
Útkeyrsla sendinga fer fram milli kl. 16 og 22 alla virka daga.
Pakkar eru keyrðir út samdægurs ef reikningur er greiddur í heimabanka fyrir kl. 14.
TVG Xpress
Vatnagörðum 22
104 Reykjavík
Sími: 5 600 750
Netfang: service@tvgxpress.is